27. nóvember 2024. Þorgerður Ólafsdóttir: Esseyja/Island Fiction
Þorgerður Ólafsdóttir myndlistarkona flytur erindið „Esseyja/Island Fiction“ á Hrafnaþingi miðvikudaginn 27. nóvember 2024 kl. 15:15.
Erindið verður flutt í Krummasölum, fundarherbergi Náttúrufræðistofnunar á 3. hæð í húsnæði stofnunarinnar í Urriðaholti, Garðabæ. Það verður einnig flutt í beinni útsendingu á Teams á netinu.
Í erindinu verður fjallað um ritverkið Esseyja / Island Fiction og tilurð þess eftir myndlistarkonuna Þorgerði Ólafsdóttur, sem kom út þann 14. nóvember 2023, á 60 ára gosafmæli Surtseyjar. Í bókinni er fléttað saman listaverkum, ferðasögum og textum sem fjalla um margslungnar hliðar á tilveru og sögu Surtseyjar.
Esseyja er þverfaglegt rit þar sem lesendur fá að skyggnast inn í marglaga veröld Surtseyjar út frá ólíkum sjónarhornum eins og myndlist, náttúrufegurð, menningu- og náttúruminjum, áhrifum mannfólks á náttúruna og upplifun okkar af landslagi.
Sumarið 2021 var Þorgerði veitt leyfi til rannsókna í Surtsey þar sem hún dvaldi í þrjá daga ásamt hópi jarðvísindamanna. Í samspili við ferðasögu og myndlistarverk Þorgerðar eru í bókinni esseyjur eftir fjórar fræðikonur og rannsakendur: Birnu Lárusdóttur, íslensku- og fornleifafræðing, Guðbjörgu R. Jóhannesdóttur, umhverfisheimspeking, Þóru Pétursdóttur, fornleifa-og minjafræðing og Becky Forsythe ritstjóra og sýningastjóra.
Hönnuður bókarinnar er Elín Edda Þorsteinsdóttir. Bókin er gefin út í samstarfi við rannsóknarverkefnið Relics of Nature sem Þóra Pétursdóttir er umsjónaraðili að og Þorgerður ein af þátttakendum.
Í tengslum við útgáfuna og gosafmæli Surtseyjar, setti Þorgerður upp verkið Spor á Kömbunum á Hellisheiði, þar sem vel sést til Surtseyjar í björtu veðri. Styrktarðaðilar eru Relics of Nature, Háskólinn í Osló (UiO), Umhverfisstofnun, Rannís – starfslaunasjóður myndlistarmanna, Myndlistarsjóður og Bókmenntassjóður.