Náttúrufræðistofnun leitar að matráði til starfa á Akranesi – Ljósm. Heiðrún Eiríksdóttir
Náttúrufræðistofnun óskar eftir að ráða matráð í 40-50% stöðu á starfsstöð stofnunarinnar á Akranesi. Starfið felst í framreiðslu á léttri máltíð í hádeginu fyrir starfsfólk stofnunarinnar ásamt umsjón með eldhúsi, matsal og innkaupum. Viðkomandi sér einnig um létt þrif og er tengiliður vegna aðkeyptrar þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð • Dagleg umsjón með eldhúsi og framreiðslu á léttum kosti í hádeginu • Umsjón með bifreiðum og húsbúnaði • Umsjón með húsnæði starfsstöðvarinnar á Akranesi • Létt þrif • Tengiliður við fyrirtæki vegna þjónustusamninga • Umsjón með smærri vöruinnkaupum og rekstrarþáttum • Ýmis aðstoð við starfsfólk, sendiferðir og móttaka sendinga. • Öryggivörður á starfsstöð stofnunarinnar á Akranesi • Ýmis önnur tilfallandi verkefni