Loftslagsbreytingar, frjókorn og lýðheilsa
Frjókorn frá birki og grösum eru meðal algengustu ofnæmisvalda í Evrópu og valda einkennum hjá allt að 40% íbúa. Ný vísindarannsókn sýnir að loftslag og landfræðileg staðsetning hafa veruleg áhrif á frjókornatímabil og að frjókornatímabil á Íslandi eru viðkvæm fyrir veðurbreytingum.
Í rannsókninni voru borin saman langtímagögn frá Akureyri og Kraká í Póllandi frá tímabilinu 1998–2023. Niðurstöðurnar sýna að í Kraká koma fram skýrari langtímabreytingar á meðan skammtímabreytingar í hita og úrkomu hafa meiri áhrif á frjókornatímabilin á Íslandi.
Greinin var birt í vísindaritinu Aerobiologia og ber heitið How does geographic location affect birch and grass pollen seasons? A comparative study of Iceland (Akureyri) and Poland (Kraków). Að rannsókninni stóð Ewa Przedpelska-Wasowicz við Náttúrufræðistofnun ásamt vísindafólki við Jagiellonian-háskólann í Póllandi.
Rannsóknin er mikilvæg í ljósi loftslagsbreytinga sem hafa áhrif á hitastig, úrkomu og vaxtarskilyrði plantna. Hún dregur fram að frjókornatímabil eru verða bæði kröftugri og breytilegri, sem undirstrikar mikilvægi nákvæmra frjókornaspáa fyrir ofnæmissjúklinga. Betri spár um frjókornadreifingu geta dregið úr heilsufarsvandamálum með því að gera einstaklingum kleift að bregðast fyrr við, sérstaklega á norðlægum svæðum sem hlýna hratt.
How does geographic location affect birch and grass pollen seasons? A comparative study of Iceland (Akureyri) and Poland (Kraków)