Valagil í Álftafirði við Ísafjarðardjúp – Ljósm. Ingvar A. Sigurðsson
Náttúrufræðistofnun óskar eftir að ráða sérfræðing í fjármálum og launavinnslu í 100% starf. Öll kyn eru hvött til að sækja um störf hjá Náttúrufræðistofnun í samræmi við jafnréttisáætlun og jafnlaunastefnu stofnunar.
Helstu verkefni og ábyrgð: • Hefur umsjón með bókhaldi og reikningagerð • Uppgjör bankareikninga og kreditkorta ásamt frágangi á virðisaukaskattsuppgjöri. • Umsjón með launavinnslu og tímaskráningum • Samþykkt reikninga • Vinna við áætlanagerð reksturs og frágang ársreiknings • Aðstoð við áætlanagerð og uppgjör sértækra verkefna • Samskipti við fjármálaskrifstofu umhverfis-, orku- og auðlindaráðuneytisins og Fjársýslu ríkisins vegna fjármála í samvinnu við sviðsstjóra. • Önnur tilfallandi verkefni