Náttúrufræðistofnun er fyrirmyndarstofnun

Náttúrufræðistofnun hlaut í gær viðurkenningu Sameykis eftir að hafa lent í 5. sæti í könnuninni Stofnun ársins 2024 í flokki meðalstórra ríkisstofnana. 

Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana en tilgangur könnunarinnar er að taka eftir og verðlauna vinnustaði sem ná framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs. Könnunin er gerð meðal starfsmanna á opinberum vinnumarkaði og árið 2024 náði hún til um 35 þúsund manns. Gjaldgeng svör fengust frá tæplega 17.400 manns og svarhlutfallið var tæplega 52%. 

Að þessu sinni varð Náttúrufræðistofnun í 5. sæti af 39 í flokki meðalstórra ríkisstofnana (40–89 manns) og hlýtur þar með nafnbótina fyrirmyndarstofnun. Þegar litið er til allra þátta sem voru til skoðunar var stigafjöldi alls staðar vel yfir meðallagi nema þar sem spurt var um launakjör. Í fyrstu fjórum sætum könnunarinnar eru Þjóðskrá Íslands, Menntaskólinn á Ísafirði, Vinnueftirlit ríkisins og Menntskólinn á Egilsstöðum.

Árið 2024 markaði miklar breytingar hjá Náttúrufræðistofnun, þegar þrjár stofnanir, Náttúrurannsóknarstöðin við Mývatn, Landmælingar Íslands og Náttúrufræðistofnun Íslands, voru sameinaðar í eina. Breytingarnar höfðu í för með sér rót fyrir starfsfólk sem kemur úr ólíkri starfsmenningu en þrátt fyrir áskoranir hafa viðbrögð starfsfólks verið jákvæð, sem sýnir sig í könnuninni um stofnun ársins.

Niðurstöður könnunarinnar