Nýjar höfuðstöðvar Náttúrufræðistofnunar verða á Akranesi samkvæmt ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Sunnudaginn 3. nóvember undirritaði ráðherra viljayfirlýsingu við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) um að styðja við uppbyggingu starfsstöðva Náttúrufræðistofnunar og fleiri opinberra stofnana ráðuneytisins á Vesturlandi.
Náttúrufræðistofnun tók til starfa 1. júlí 2024 þegar Landmælingar Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands og Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn voru sameinaðar í eina stofnun. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru á Akranesi, Akureyri, Breiðdalsvík, Garðabæ og í Mývatnssveit.