Nýjar tegundir í Surtsey
Skordýrafræðingur Náttúrurfræðistofnunar hefur fundið þrjár nýjar smádýrategundir í árlegum leiðangri líffræðinga í Surtsey þar sem árleg vöktun á landnámi plantna og dýra fer fram.
Um er að ræða tegundirnar fíflalús, Uroleucon taraxaci, mýrasnigil, Deroceras leave, og dvergloddu, Trichoniscus pusillus.
Fíflalús er nýlegur landnemi á Íslandi og hefur aldrei áður fundist á Suðurlandi. Tegundin lifir á túnfíflum og er gjarnan að finna í görðum og í skógrækt.
Mýrasnigill finnst á láglendi í öllum landshlutum hér á landi en útbreiðslan er þó illa kortlögð. Tegundin lifir á plöntum og plöntuleifum og er að finna þar sem nægur raki er, t.d. í mýrlendi og á lækjarbökkum og miklu gróðurþykkni sem heldur vel rakanum.
Dverglodda er að finna syðst á landinu, frá Hafnarfirði austur í Hornafjörð, auk þess sem hún hefur fundist á einum stað í Borgarfirði. Hana er að finna þar sem rakastig er hátt, t.d. í gróðursverði í laufskógabotnum, undir lurkum og steinum og fleiri stöðum, en einnig þar sem jarðhita gætir.
Frekari fréttir af leiðanginum til Surtseyjar birtast að honum loknum.