Botrychium nordicum (Botrychium nordicum)

Útbreiðsla

Skorutungljurt hefur fundist á fjórum stöðum á Íslandi í mismunandi landshlutum. Auk Kaldalóns hefur hún fundist á Höfn í Hornafirði, í grennd við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi, og á Þóroddsstöðum í Ólafsfirði.

Almennt

Ný tegund tungljurtar sem nýlega var uppgötvuð og lýst í tímaritinu Brittonia í desember heftinu 2016. Tegundin hefur enn sem komið er aðeins fundist í Noregi og á Íslandi. Það var Peter Struck sem fyrstur fann hana á Íslandi norður við Kaldalón árið 2005, og sendi sýnishorn af henni ásamt fleiri tungljurtum til Donald R. Farrar, tungljurtasérfræðings í Bandaríkjunum.

Lýsing

Greining

Þessi nýja tungljurt líkist nokkuð venjulegri tungljurt, en hin tungllaga smáblöð eru áberandi skörðótt að framan. Annað einkenni hennar er að stofninn er áberandi hvítur neðst við fótinn og með dökkbrúnni himnu, líklega leifum af kynliðnum sem er undanfari þess hluta tungljurtarinnar sem er ofanjarðar, gróliðarins. Smáblaðpörin eru heldur gisnari en á tungljurt, skarast aðeins lítið eitt. Neðsta blaðparið er í plani við hin líkt og á keilutungljurt, en rís ekki fram eins og á venjulegri tungljurt.

Válistaflokkun

DD (vantar gögn)

ÍslandHeimsválisti
DD NE

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Skorutungljurt var ekki á válista.

Válisti 1996: Skorutungljurt var ekki á válista.

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tungljurtir (Psilotopsida)
Ætt (Family)
Naðurtunguætt (Ophioglossaceae)
Tegund (Species)
Botrychium nordicum (Botrychium nordicum)