Hagastör (Carex pulicaris)

Útbreiðsla

Sjaldgæf stör sem finnst á nokkru svæði á norðanverðum Austfjörðum, á Snæfellsnesi, á Ströndum og á Skarðsströnd en ófundin annars staðar. Allir fundarstaðir hagastarar eru á láglendi neðan 200 m hæðar. Hún er án efa gömul í landinu.

Búsvæði

Hún vex í rökum mýrarhöllum, deiglendi yfir klöppum eða á lækjarbökkum.

Lýsing

Heldur smávaxin stör (15–20 sm) með einu gisnu axi í endann. Blómgast í júlí.

Blað

Stráin sívöl, gáruð. Blöðin grönn (1 mm), grópuð (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Eitt fremur gisið ax, kvenblómin neðst, karlblómin efst. Þegar kvenblómin þroskast vísa aldinin beint út eða niður á við. Axhlífar oddmjóar, ljósbrúnar, himnurendar. Hulstrin eru grönn (1 mm), alllöng (4-5 mm), slétt og gljáandi, kastaníubrún, oddbaugótt eða lensulaga. Þau falla fljótt af eftir þroskun. Frænin eru tvö.

Greining

Líkist helst broddastör en hún er auðkennd á broddinum sem vex upp úr hulstrinu. Aldin hagastararinnar eru miklu kröftugri og gildvaxnari.

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Einkímblöðungar (Liliopsida)
Ætt (Family)
Stararætt (Cyperaceae)
Tegund (Species)
Hagastör (Carex pulicaris)