Finnungsstör (Carex nardina)

Útbreiðsla

Sjaldgæf stör, mest frá 600 upp í 1100 m hæð. Einkum fundin á hálendinu norðan jökla og á fjöllum við Eyjafjörð. Aðalheimkynni finnungsstarar hér á landi er landræna svæðið norðan jökla. Samkvæmt útbreiðslukortum virðist mega greina þrjú meginsvæði: Háfjöllin báðum megin Eyjafjarðar þar sem hún vex einkum á fjallstoppum eða uppi á veðurbörðum hryggjum, og svo hálendið suður við jökla frá Austari Jökulsá austur fyrir Skjálfandafljót, og að lokum hálendið umhverfis Herðubreið og Möðrudal inn í Krepputungu, Kverkfjöll og austur í Brúardali. Á hálendinu getur hún verið bæði á sléttum, stöðugum melum, eða uppi á fjallshryggjum. Hæstu fundarstaðir eru á Mannshrygg í Hlíðarfjalli við Akureyri í 1140 m og í Kaldbak við Eyjafjörð í 1120 m.

Búsvæði

Vex á melum og rindum hátt til fjalla.

Lýsing

Mjög smávaxin stör (3–8 sm) með 1–2 stuttum öxum með karlblómum efst. Blómgast í júlí.

Blað

Stráin sívöl. Blöðin þráðmjó, sívöl neðan til og grópuð, þrístrend í endann, oft á hæð við eða hærri en axið. Vex í toppum með þéttstæðum blaðslíðrum og oft bogsveigðum stráum og blöðum (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Oftast með einu, stuttu axi, sjaldan tveim, karlblóm efst í axinu. Axhlífar ljósbrúnar, himnukenndar, með tenntar rendur, hulstrið ljósbrúnt, mjókkar jafnt upp í trjónu. Frænin tvö (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Svipar fljótt á litið til þursaskeggs þar sem hún er óblómguð.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Einkímblöðungar (Liliopsida)
Ætt (Family)
Stararætt (Cyperaceae)
Tegund (Species)
Finnungsstör (Carex nardina)