Trjónustör (Carex flava)

Útbreiðsla

Mjög sjaldgæf stör, fundin á örfáum stöðum á Látraströnd og í Fjörðum austan Eyjafjarðar. Flestir eru fundarstaðirnir á láglendi, hæstur er Brenniás á Fljótsheiði í um 300 m hæð.

Búsvæði

Vex í deiglendi, nær ætíð meðfram lækjarsytrum.

Lýsing

Meðalhá stör (10–50 sm) með ljósum, egglaga öxum og löngu stoðblaði.

Blað

Myndar litlar þúfur með stuttum jarðrenglum. Blöð flöt og ljósgræn, 3–7 mm breið, oftast styttri en strá. Strá bein og hvassstrend (Lid og Lid 2005).

Blóm

Eitt legglaust eða stuttleggjað karlax í toppinn og tvö til þrjú stutt, ljósgræn, egglaga og nær legglaus kvenöx þétt saman eða hið neðsta örlítið neðar en hin. Neðsta stoðblaðið mikið lengra en axskipanin. Hulstur kvenaxanna eru með langri trjónu sem störin dregur nafn sitt af. Axhlífar gulbrúnar með grænni taug. Hulstur 5–7 mm langt, gljáandi, gulgrænt (Hörður Kristinsson, Lid og Lid 2005).

Greining

Af öðrum störum minnir hún einna helst á gullstör og er skyld henni, en er stórvaxnari og hefur stærri öx og mun lengri hulsturtrjónu sem er einnig oftast bogin.

Válistaflokkun

EN (tegund í hættu)

ÍslandHeimsválisti
EN LC

Forsendur flokkunar

Trjónustör hefur fundist á 6 stöðum á norðanverðu landinu. Frekar lítið er af tegundinni á hverjum fundarstað og stofninn talinn lítill og telji færri en 250 fullþroska einstaklinga.

Viðmið IUCN: D

D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Trjónustör er á válista í hættuflokki EN (í hættu).

Válisti 1996: Trjónustör er á válista í hættuflokki EN (í hættu).

Verndun

Trjónustör er friðuð samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Einkímblöðungar (Liliopsida)
Ætt (Family)
Stararætt (Cyperaceae)
Tegund (Species)
Trjónustör (Carex flava)