Safastör (Carex diandra)

Útbreiðsla

Mjög sjaldgæf á Íslandi, og nær eingöngu fundin meðfram ströndinni á Suðurlandi á milli Ölfusár og Jökulsár á Breiðamerkursandi. Einna algengust virðist hún vera í Öræfum. Einn stakur fundarstaður er utan þessa svæðis, í flóa við Ytri-Garða og Hofgarða á Snæfellsnesi. Allir fundarstaðirnir eru neðan 200 m hæðar.

Búsvæði

Mýrar og flóar.

Lýsing

Stórvaxin stör (30–60 sm) með langt, þétt, broddótt ax.

Blað

Myndar breiður. Neðri slíður grábrún til dökkbrún. Blöðin eru löng, grágræn, 2-3 mm breið. Stráin eru nær sívöl en gárótt neðan til, sljóstrend ofar og lítið eitt snörp. (Hörður Kristinsson 2010, Lid og Lid 2005).

Blóm

Hefur 5-8 þéttstæð, legglaus öx sem mynda brúnan, keflislaga, 2-3 sm langan dúsk á stráendunum. Fáein karlblóm eru efst í öxunum. Axhlífar ljósbrúnar með breiðum himnukanti, oddmjóar. Hulstur 2,5–3 mm langt, brúnt, dregst jafnt saman í langan odd með broddóttum hliðarköntum. Tvö fræni (Hörður Kristinsson 2010, Lid og Lid 2005).

Greining

Axskipan minnir á ígulstör og rjúpustör en er annars ólík.

Válistaflokkun

NT (tegund í yfirvofandi hættu)

ÍslandHeimsválisti
NT NE

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Safastör er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Válisti 1996: Safastör er ekki á válista.

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Einkímblöðungar (Liliopsida)
Ætt (Family)
Stararætt (Cyperaceae)
Tegund (Species)
Safastör (Carex diandra)