Línstör (Carex brunnescens)

Útbreiðsla

Sjaldgæf stör. Fundarstaðirnir eru nokkuð dreifðir um landið en oftast er mjög lítið af henni í hverjum stað. Flestir eru þeir frá láglendi upp í 400 m hæð en hæsti skráði fundarstaður er í Þjófadölum á Kili í 600 m hæð.

Búsvæði

Vex í grasbollum og á þurrum grundum.

Lýsing

Meðalhá stör (10–40 sm) með fíngerðum blöðum og nokkur, nær hnöttótt öx.

Blað

Strá línstarar eru grönn, mörg saman, mynda þúfur eða toppa. Stráin eru hvassþrístrend og lítið eitt snörp. Blöðin græn, grönn, flöt, 1,5-2,5 mm breið.

Blóm

Oftast 4-7 lítil, hnöttótt, ljósmóleit öx á grönnum stráendanum líkt og perlur á bandi, oft þétt saman efst en vel aðskilin neðar. Örfá karlblóm eru neðst í öxunum; axhlífar himnukenndar með brúnleitum eða dökkgrænum miðstreng. Hulstrin eru gulbrún eða grænbrún, topplaga, með tenntum, hliðstæðum rifjum og stuttri trjónu. Tvö fræni.

Greining

Líkist blátoppastör en hefur móleitari, styttri og hnöttóttari öx og fíngerðari strá. Línstör vex fremur í þurrlendi en blátoppastörin er fremur í deiglendi og á vatnsbökkum, myndar þéttari toppa með skástæðum stráum.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Einkímblöðungar (Liliopsida)
Ætt (Family)
Stararætt (Cyperaceae)
Tegund (Species)
Línstör (Carex brunnescens)