Hrísastör (Carex adelostoma)

Útbreiðsla

Afar sjaldgæf stör á Íslandi. Hefur einkum fundist á vestanverðu Norðurlandi frá Fljótum og allt vestur í Ísafjarðardjúp.

Búsvæði

Vex einkum í deiglendum, þýfðum hrís- og lyngmóum, oft í basískum jarðvegi.

Lýsing

Fremur hávaxin stör (30–80 sm) sem myndar breiður og hefur langar jarðrenglur, blöðin ljósgrágræn. Toppax keilulaga, hin egglaga.

Blað

Myndar breiður, langar jarðrenglur. Slíður vínrauð eða brúnrauð. Stráin eru þrístrend, blöðin ljósgrágræn, 2-3,5 mm breið, styttri en stráið, neðstu blaðslíðrin eru niðri í sverðinum.

Blóm

Axskipunin aflöng, með 2-4 öxum nema í toppinn. Toppaxið er keilulaga, oftast eilítið stærra en hin (Lid og Lid 2005). Karlblómin eru neðst í toppaxinu, öxin upprétt, neðsta stoðblaðið nær ekki upp fyrir toppaxið. Kvenblóm eru ekki aðeins í neðri öxunum, heldur einnig í toppaxinu. Öx hrísastarar eru öll egglaga og svipuð að stærð. Axhlífar eru dökkbrúnar, miðstrengurinn ljósari, gengur fram úr axhlífinni og myndar stuttan odd. Hulstrin eru græn eða móleit, smánöbbótt, trjónulaus, frænin þrjú. 

Greining

Oft er henni ruglað saman við afbrigðileg eintök stinnastarar eða mýrastarar sem geta líka haft kvenblóm í toppaxinu. Frá þeim þekkist hrísastörin á því að kvenblómin hafa þrískipt fræni, en þau eru tvískipt á stinna- og mýrastör. Stöngullinn er heldur ekki eins þykkur og stinnur eins og á stinnastör og öxin (hulstrin) eru ljósari græn. Frá hinni náskyldu klumbustör þekkist hrísastörin á stuttri trjónu axhlífarinnar, sem ekki nær upp fyrir hulstrið.

Válistaflokkun

VU (tegund í nokkurri hættu)

ÍslandHeimsválisti
VU DD

Forsendur flokkunar

Hrísastör flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 8 km2.

Viðmið IUCN: D2

D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.
D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Hrísastör er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Válisti 1996: Hrísastör er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Einkímblöðungar (Liliopsida)
Ætt (Family)
Stararætt (Cyperaceae)
Tegund (Species)
Hrísastör (Carex adelostoma)