Stinnasef (Juncus squarrosus)

Útbreiðsla

Afar sjaldgæf jurt á Íslandi, fundin á nokkrum stöðum á Austfjörðum og fjórum stöðum í Strandasýslu á Vestfjörðum.

Búsvæði

Vex í deiglendi, einkum oft meðfram lækjum uppi í hlíðum.

Lýsing

Þetta er stórvaxið sef, blöðin stinn og rennulaga, nokkuð gróf, í þéttum toppum sem geta orðið meir en metri í þvermál.

Blað

Vex í þéttum toppum sem geta orðið meir en metri í þvermál. Blöðin og blaðslíðurin sérstaklega stinn. Blöðin eru rennulaga, í þéttum toppum, standa meira eða minna hornrétt út í allar áttir frá ljósbrúnum, breiðum blaðslíðrum. Stráið sívallt, slétt.

Blóm

Blómin eru í þéttum hnoðum í tveim (stundum þremur) hæðum á stöngulenda. Blómhlífin er 6-blaða, blómhlífarblöðin dökkbrún og gljáandi, ljósari við miðtaugina, með breiðum himnufaldi og ganga fram í ávalan odd. Fræflar eru 6, ein fræva, aldinið brúnt, ámóta langt eða heldur styttra en blómhlífarblöðin.

Greining

Minnir á dökkasef en blómhlífarblöðin hafa breiðari himnufald, blómskipunin ljósari, aldinin minni.

Válistaflokkun

VU (tegund í nokkurri hættu)

ÍslandHeimsválisti
VU NE

Forsendur flokkunar

Stinnasef flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem stofninn er talinn lítill og telji færri en 1000 fullþroska einstaklinga auk þess sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 12 km2.

Viðmið IUCN: D2

D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.
D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Stinnasef er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Válisti 1996: Stinnasef er ekki á válista.

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Einkímblöðungar (Liliopsida)
Ætt (Family)
Sefætt (Juncaceae)
Tegund (Species)
Stinnasef (Juncus squarrosus)