Villilaukur (Allium oleraceum)

Útbreiðsla

Hann var fluttur til landsins fyrir alllöngu síðan og vex aðeins á fáum stöðum á landinu.

Búsvæði

Við tún og bæi.

Lýsing

Fjölær, graskennd jurt af liljuætt, vex upp af lauk sem er 10-15 mm í þvermál. Meðalhá til hávaxin jurt (20–80 sm) með mjó blöð og legglöng, hvítleit blóm í sveipum (Lid og Lid 2005).

Blað

Blöðin eru graskennd, 14-30 sm löng og 2-5 mm breið, hálfsívöl eða grópuð, oft flöt í oddinn. Það er laukbragð af þeim, og þau visna snemma (Lid og Lid 2005).

Blóm

Blómin með allt að 10 mm langa, granna leggi, hvítleit og standa allmörg saman í sveip, sem er umlukinn tveim allbreiðum hulsturblöðum á meðan þau eru að þroskast. Blómleggir eru afar mislangir og vísa í ýmsar áttir, sumir niður. Tvö reifablöð lykja um unga blómskipunina, þau hafa breiðan, himnukenndan, bleikleitan blaðfót og langan þráðlaga, graskenndan odd. Blómhlífin er hvítleit eða himnukennd með grænleitum, bleikum eða brúnleitum blæ; hún umlykur fræfla og frævu sem sjaldan myndar aldin. Fjólubláleitir laukknappar vaxa upp á milli blómanna.

Aldin

Á milli blómanna myndast leggstuttir eða legglausir, dökkrauðir, spísslaga æxlilaukar á haustin (Lid og Lid 2005).

Greining

Blöðin eru grasleit, með laukbragði. Blómin eru hvít á löngum leggjum.

Verndun

Villilaukur er friðlýstur samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.. Hann er þó ekki á válista.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Einkímblöðungar (Liliopsida)
Ætt (Family)
Hjarðliljuætt (Amaryllidaceae)
Tegund (Species)
Villilaukur (Allium oleraceum)