Flæðalófótur (Hippuris tetraphylla)

Útbreiðsla

Hann finnst allvíða á norðanverðu landinu frá Vestfjörðum austur á Langanes. Fræin berast með fuglum og vatni (Lid og Lid 2005).

Almennt

Einnig kallaður strandlófótur.

Búsvæði

Vex eingöngu í síkjum á sjávarflæðum.

Lýsing

Fremur stórvaxin vatnajurt (10–40 sm) með blöðin í krönsum, blómin mjög lítið áberandi.

Blað

Jurtin er með 2-4 mm gilda stöngla sem standa upp úr vatninu og eru með kransstæðum blöðum. Blöðin eru langoddbaugótt eða öfuglensulaga, 7-15 mm löng og 3-6 mm breið, standa fjögur til sex saman í kransi.

Blóm

Blómin örsmá, standa einstök í blaðöxlunum, tvíkynja, yfirsætin. Blómhlífin einföld, myndar aðeins fjóra smásepa sem standa út úr frævunni ofanverðri. Ein dumbrauð fræva og einn fræfill í hverju blómi (Hörður Kristinsson 2010).

Aldin

Hnetur (Lid og Lid 2005).

Greining

Líkist lófæti og er stundum talinn afbrigði þeirrar tegundar. Lófótur er heldur lágvaxnari og hefur breiðari (2–5 mm) og færri blöð (3-5 í hverjum kransi). Hann vex eingöngu á sjávarflæðum eða í síkjum út frá þeim.

Válistaflokkun

VU (tegund í nokkurri hættu)

ÍslandHeimsválisti
VU LC

Forsendur flokkunar

Flæðalófótur flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 16 km2.

Viðmið IUCN: D2

D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.
D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Flæðalófótur er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Válisti 1996: Flæðalófótur er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Græðisúruætt (Plantaginaceae)
Tegund (Species)
Flæðalófótur (Hippuris tetraphylla)