Súrsmæra (Oxalis acetosella)

Útbreiðsla

Afar sjaldgæf jurt á Íslandi sem nær eingöngu finnst á nokkrum stöðum á Austurlandi. Hún var flutt inn til Eyjafjarðar fyrir hálfri öld síðan, og hefur breiðst vel út í skógarbotninum þar.

Búsvæði

vVex ætíð í skugga, annað hvort í skógarbotni eða í gjótum milli steina þar sem skógar nýtur ekki.

Lýsing

Fjölær, mjög sjaldgæf tegund með hvítum, fimmdeildum blómum og þrífingruðum blöðum.

Blað

Blöð og blóm eru á 5-10 sm löngum, lítið eitt hreisturhærðum stilkum upp af jarðstöngli með smáum, ljósbrúnum, þykkum hreisturblöðum. Laufblöðin langstilkuð, ljósgræn, þrífingruð, öfughjartalaga, lítið eitt hreisturhærð (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómin eru fimmdeild, 1,5-2 sm í þvermál, krónublöðin eru hvít með dekkri, fjólubláum eða bláum æðum. Bikarblöðin eru oddbaugótt, samgróin neðst, grænleit, með randhærðum himnufaldi. Blómstöngullinn hefur tvö örsmá hreisturkennd forblöð ofan við miðju. Fræflar eru 10, ein fræva með 5 stílum (Hörður Kristinsson 2010).

Aldin

Fræin þeytast út við aldinþroskunina (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Blöð súrsmærunnar minna mjög á blöð hvítsmára, nema að þau hafa skerðingu að framan. Blómin eru þó mjög ólík, þar sem þau eru miklu stærri, regluleg, fimmdeild og eru krónublöðin hvít með bláum æðum.

Válistaflokkun

VU (tegund í nokkurri hættu)

ÍslandHeimsválisti
VU NE

Forsendur flokkunar

Súrsmæra flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem stofninn er talinn lítill og telji færri en 1000 fullþroska einstaklinga auk þess sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 10 km2.

Viðmið IUCN: D1, 2

D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.
D1. Number of mature individuals.
D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Súrsmæra er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Válisti 1996: Súrsmæra er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Verndun

Súrsmæra er friðuð samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Súrsmæruætt (Oxalidaceae)
Tegund (Species)
Súrsmæra (Oxalis acetosella)