Fuglaertur (Lathyrus pratensis)

Útbreiðsla

Fremur sjaldgæf. Allir fundarstaðir eru á láglendi neðan 200 m. Þær eru einna algengastar á Suðurlandsundirlendi. Þær vaxa að jafnaði á fremur litlum blettum eða takmörkuðum svæðum, en oft í þéttum breiðum og blómgast ríkulega. Útbreiðsla fuglaertnanna gæti bent til þess að þær hafi borist til landsins eftir landnám, vegna þess hversu blettótt hún er, fremur en að þær séu náttúrlegur hluti af ákveðnum gróðurlendum, en þó er engan veginn hægt að fullyrða neitt um það. Á seinni árum hefur nokkuð verið gert í því að auka útbreiðslu þeirra jafnhliða skógrækt, og til að bæta jarðveginn.

Búsvæði

Vaxa einkum í ýmis konar valllendi, ræktarlegu mólendi, túnjöðrum, grasbrekkum, mólendi og í skógarkjarri. Er að jafnaði við byggð eða nærri ræktuðu landi.

Lýsing

Fremur hávaxin jurt (30–50 sm) með vafþráðum og gulum, einsamhverfum blómum. Blómgast í júlí–ágúst.

Blað

Stöngullinn hvassstrendur. Blöðin stakstæð, fjöðruð, aðeins með einu fullmynduðu blaðpari en vafþráðum í endann sem oft vefjast utan um nærliggjandi plöntur. Smáblöðin lensulaga, hvassydd. Tvö skakkörlaga og hvassydd axlablöð við blaðfótinn (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómin eru um 1,5 sm á lengd, einsamhverf, stuttstilkuð, sex til tíu saman í einhliða klasa. Krónublöðin gul. Bikarinn um 1 sm á lengd, klofinn niður til miðs í fimm mjóa og odddregna flipa, taugarnar hærðar. Fræflar tíu, ein fræva (Hörður Kristinsson 2010). Vaxa í þéttum breiðum og blómgast ríkulega.

Aldin

Aldinið er belgur, myndaður af einu fræblaði (Lid og Lid 2005).

Greining

Auðþekkt frá öðrum íslenskum tegundum á gulum ertublómum og aðeins einu pari smáblaða.

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Ertublómaætt (Fabaceae)
Tegund (Species)
Fuglaertur (Lathyrus pratensis)