Flóajurt (Persicaria maculosa)

Útbreiðsla

Finnst allvíða á Suður- og Suðvesturlandi þar sem jarðhita gætir og er einnig á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Utan þessa svæðis finnst hún á stöku stað sem slæðingur, oftast við jarðhita.

Búsvæði

Jarðhitasvæði, við hveri, laugar, garða og gróðurhús (Hörður Kristinsson 2010).

Lýsing

Einær, fremur hávaxin jurt (20–60 sm) með lensulaga blöðum og hvítleitum eða rauðbleikum blómklösum.

Blað

Jurtin er að mestu leyti hárlaus með uppsveigða stöngla. Laufblöðin eru stakstæð, stuttstilkuð, odddregin, blaðkan lensulega og mjókkar jafnt niður að stilknum, 3-8 sm á lengd og 0,8-3 sm á breidd. Örsmá, aðlæg hár eru meðfram blaðröndinni og á æðastrengjum. Axlablöðin eru ummynduð í himnukennt, randhært slíður utan um blaðfótinn.

Blóm

Blómin standa þétt saman í stuttum, hvítleitum eða rauðbleikum klösum út frá blaðöxlunum. Blómhlífin er ýmist fjór- eða fimmdeild, bleikrauð eða nær hvít. Blómin hafa eina frævu með 2-3 stílum, fræflar eru fjórir til átta.

Aldin

Svört eða dökkbrún, gljáandi hneta, um 2,5-3 mm á lengd.

Válistaflokkun

VU (tegund í nokkurri hættu)

ÍslandHeimsválisti
VU LC

Forsendur flokkunar

Flóajurt flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 11 km2.

Viðmið IUCN: D2

D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.
D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Flóajurt er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Válisti 1996: Flóajurt er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Súruætt (Polygonaceae)
Tegund (Species)
Flóajurt (Persicaria maculosa)