Klettaburkni (Asplenium viride)

Útbreiðsla

Mjög sjaldgæfur, hefur fundist á fremur fáum stöðum á austanverðu landinu frá Höfuðreiðarmúla við Reykjaheiði í norðri til Fagurhólsmýrar í suðri. Til skamms tíma var aðeins vitað um klettaburknann á nokkrum stöðum suðaustanlands en síðan fannst hann á fáeinum stöðum norðanlands, sumir þessara staða fóru undir hraun í Leirhnjúksgosinu.

Búsvæði

Klettaskorur.

Lýsing

Lágvaxinn burkni (8–12 sm) með fjöðruð blöð og bogtennt smáblöð.

Blað

Upp af örstuttum, uppsveigðum jarðstöngli klettaburknans vex toppur af einfjöðruðum blöðum sem eru 4-12 sm á lengd og 7-12 mm á breidd. Blaðstilkurinn er oft um þriðjungur af lengd blaðsins, grópaður, hárlaus, dökkbrúnn og gljáandi nema oft grænn alveg efst, miðstrengur blaðsins einnig grænn. Hliðarsmáblöðin 8-18 á hvorri hlið, skakktígul­laga, egglaga eða nær kringlótt, á stuttum stilk, greinilega bogtennt, 4-7 mm á lengd. 

Blóm

Tveir til fimm smáir, aflangir gróblettir neðan á hverju smáblaði sem renna síðan saman í eitt. Til hliðar við yngstu gróblettina má greina hvítleita, hliðstæða, himnukennda gróhulu sem hverfur við þroskun.

Greining

Líkist svartburkna en klettaburkninn þekkist best frá honum á grænum miðstreng blaðsins, á svartburkna er hann svartur eða dökkbrúnn. Getur einnig minnt á liðfætlu en ólíkt henni er klettaburkninn hárlaus (Hörður Kristinsson 2010).

Válistaflokkun

VU (tegund í nokkurri hættu)

ÍslandHeimsválisti
VU NE

Forsendur flokkunar

Klettaburkni flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem stofninn er talinn lítill og telji færri en 1000 fullþroska einstaklinga auk þess sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 10 km2.

Viðmið IUCN: D1, 2

D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.
D1. Number of mature individuals
D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Klettaburkni er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).

Válisti 1996: Klettaburkni er á válista í hættuflokki LR (í nokkurri hættu).

Verndun

Klettaburkni er friðaður samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Burknar (Polypodiopsida)
Ætt (Family)
Klettaburknaætt (Aspleniaceae)
Tegund (Species)
Klettaburkni (Asplenium viride)