Mosaburkni (Hymenophyllum wilsonii)

Útbreiðsla

Hann hefur aðeins fundist á einum stað á landinu, í Deildarárgili í Mýrdal í um það bil 30 m hæð yfir sjávarmáli. Á síðustu árum hefur hann ekki fundist aftur á þessum stað, og er því möguleiki á að hann sé þar útdauður, þótt um það verði varla fullyrt. Hins vegar gæti hann auðveldlega leynst víðar undir Eyjafjöllunum eða í Mýrdal þótt ekki sé vitað um það nú, þar sem hann er afar smágerður og leynist vel innan um mosann. 

Búsvæði

Hann vex á mosagrónum móbergskletti í djúpu gili á fremur skuggsælum stað og við afar háan loftraka. Hann er talinn þurfa hafrænt loftslag með háum loftraka og milda vetur. Varla finnst nokkurs staðar á landinu meira úthafsloftslag né mildari vetur en á því svæði sem hann vex.

Lýsing

Örsmár (5–10 sm) og afar fíngerður burkni.

Blað

Vex í þéttum breiðum. Afar fíngerður burkni, íslensk eintök eru aðeins 1,5-3,5 sm á hæð (eintök erlendis geta orðið um 6 sm). Vex út frá skriðulum, greindum, mjög fíngerðum (0,3 mm) jarðstöngli. Blöðin standa upprétt frá jarðstönglinum á stuttum dökkbrúnum stilk. Blaðkan er græn, hárlaus, himnukennd og gegnsæ, aðeins eitt frumulag á þykkt. Hún er fjaðurskipt í stakstæða, flipótta bleðla með brúnum miðstrengjum. Hliðarsmáblöðin eru oftast 3-7 hvoru megin á blöðkunni, um 5-7 mm á lengd, með 2-3 snubbóttum blaðflipum sem vísa fram og eru aðeins um 3-4 mm á lengd, gistenntir.

Blóm

Mosaburkninn hefur ekki fundist gróbær hér á landi. Í erlendum eintökum eru gróblettirnir á brún blaðflipanna og tveir blaðsepar sveigjast yfir þá sem hlíf (Lid og Lid 2005).

Greining

Mosaburkninn er auðþekktur frá öllum öðrum íslenskum burknum, en líkist fljótt á litið fremur ýmsum mosum. Helst ætti að mega þekkja hann frá mosum á gerð blöðkunnar, með hálffjöðruðum smáblöðum með dökkum miðstreng sem nær alveg út í ávalan enda bleðilsins.

Válistaflokkun

CR (tegund í bráðri hættu)

ÍslandHeimsválisti
CR LC

Forsendur flokkunar

Mosaburkni hefur einungis fundist á einum fundarstað á sunnanverðu landinu og hefur tegundin ekki fundist þar nýlega þrátt fyrir leit.

Viðmið IUCN: A4; B1+2ab(ii,v); C1+2a(i); D

A. Fækkun í stofni (á síðustu 10 árum eða 3 kynslóðum eftir því hvort er lengra) samkvæmt:
A4. Fækkun (samkvæmt athugun, áætlun, ályktun eða grun) þar sem tímabilið inniheldur bæði fortíð og framtíð (allt að 100 árum fram í tímann) og þar sem fækkunin hefur ekki stöðvast EÐA eru ekki þekktar EÐA eru ekki afturkræfar samkvæmt;
(a) beinni athugun

B1. Útbreiðsla áætluð minni en 100
B2. Dvalar- eða vaxtarsvæði áætlað minna en 10 km2 og mat bendir til að:
a. Útbreiðsla stofns er mjög slitrótt eða takmörkuð við aðeins einn stað.
b. Stofn hefur sífellt minnkað samkvæmt athugun, ályktun eða áætlun eftirfarandi tveggja þátta;
(ii) dvalar- eða vaxtarsvæðis,
(v) fjölda fullþroska einstaklinga.

C. Stofn talinn minni en 250 fullþroska einstaklingar og:
C1. Stofn talinn hafa minnkað samfellt um að minnsta kosti 25% á þremur árum eða einni kynslóð, hvort heldur spannar lengri tíma (allt að 100 árum fram í tímann) og
C2. Fullþroska einstaklingum hefur fækkað samfellt samkvæmt athugun, áætlun eða ályktun OG:
(a) Stofngerð þannig að;
(i) enginn undirstofn sé talinn stærri en 50 fullþroska einstaklingar.

D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Mosaburkni er á válista í hættuflokki CR (í bráðri hættu).

Válisti 1996: Mosaburkni er á válista í hættuflokki CR (í bráðri hættu).

Verndun

Mosaburkni er friðaður samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Burknar (Polypodiopsida)
Ætt (Family)
Mosaburknaætt (Hymenophyllaceae)
Tegund (Species)
Mosaburkni (Hymenophyllum wilsonii)