Renglutungljurt (Botrychium simplex)

Útbreiðsla

Þetta er sjaldgæf tegund sem stundum vex við jarðhita eins og í Jarðbaðshólum og Bjarnarflagi í Mývatnssveit en vex einnig í köldum, sendnum jarðvegi einkum við suðausturströnd landsins.

Búsvæði

Hún vex einkum í sendnu, mögru graslendi, oft nærri sjó en einnig á jarðhitasvæðum.

Lýsing

Smávaxin jurt með einu, fjaðurskiptu blaði og klasa af gróhirslum.

Blað

Dvergtungljurtin hefur örstuttan, uppréttan jarðstöngul sem greinist í tvennt við stofninn, í grannan, uppréttan, gróbæran hluta með klasa af gróhirslum, og stofnstæða blöðku. Blaðkan getur verið fjaðurskipt með kringluleit, egglaga eða lítið eitt nýrlaga smáblöð, en stundum er hún örlítil, heil og óskert. Einnig koma fyrir þrískiptar blöðkur með stilkuðum, lítið eitt fjaðurskiptum smáblöðum sem eru einföld, oft nokkuð hrokkin á röndunum.

Blóm

Gróbæri blaðhlutinn á grönnum, allöngum stilk.

Greining

Dvergtungljurtin þekkist best á því að blaðkan er alveg neðst í sverðinum, en gróbæri hlutinn er vel uppréttur.

Afbrigði

Hér á landi hefur einnig nýlega fundist sjaldgæft afbrigði dvergtungljurtar, Botrychium simplex var. tenebrosum („renglutungljurt“). Á því er grólausi blaðhlutinn festur mjög ofarlega á stönglinum og oft ber hann einnig örfáar gróhirslur. Rannsóknir eiga eftir að skera úr um hvort þetta afbrigði sé í raun sjálfstæð tegund fremur en afbrigði dvergtungljurtar.

Válistaflokkun

Dvergtungljurt er friðuð samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978, um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda. Hún er þó ekki á válista.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tungljurtir (Psilotopsida)
Ætt (Family)
Naðurtunguætt (Ophioglossaceae)
Tegund (Species)
Renglutungljurt (Botrychium simplex)