Keilutungljurt (Botrychium minganense)

Útbreiðsla

Fannst fyrst á Íslandi árið 2001. Keilutungljurt er eftir því sem best er vitað í dag ein af fáum vestrænum tegundum á Íslandi, eins og gulstörin og eyrarrósin en er ekki þekkt frá öðrum löndum Evrópu. Sá möguleiki er þó enn fyrir hendi að mönnum hafi yfirsést þessi tegund þar eins og hér á landi.

Búsvæði

Sendinn jarðvegur eða frjóar grasbrekkur.

Lýsing

Lágvaxin jurt með einu, fjaðurskiptu blaði og klasa af gróhirslum.

Blað

Sproti keilutungljurtar er um 5-30 sm langur upp af stuttum, uppréttum jarðstöngli með einu blaði sem greinist í tvennt ofan til. Gróbæri blaðhlutinn er oft sérlega grófur og kröftugur miðað við hinn, getur verið allt að 10 sm á lengd, hliðargreinar með reglulegu millibili bera klasa af gróhirslum. Tillífunarhluti blaðsins er oft festur um miðjan stöngul, stundum ofar, en oft töluvert neðar, oft stilklaus eða á stuttum stilk. Hann er fjaðraður, oft með 4-8 pör af öfugkeilulaga smáblöðum, sem oftast eru ekki breiðari en löng, skarast venjulega ekki til hliðanna, heldur er oft bil á milli þeirra. Smáblöðin eru gaffalstrengjótt eins og á venjulegri tungljurt, oft heilrend en stundum með smáskerðingar að framan.

Blóm

Gróbæri blaðhlutinn hefur hliðargreinar sem með reglulegu millibili bera klasa af hnöttóttum gróhirslum, sem opnast með þverrifu í toppinn.

Greining

Hún líkist venjulegri tungljurt mikið, og var seint uppgvötuð vegna þess hversu líkar þær eru. Smáblöðin á keilutungljurt eru mjórri og fremur keilulaga en tungllaga og skarast því ekki eins mikið og á venjulegri tungljurt. Blaðpörin eru öll í einum fleti en ekki eins og á tungljurt þar sem neðsta blaðparið rís fram og snúa þau því hvort á móti öðru.

Válistaflokkun

DD (vantar gögn)

ÍslandHeimsválisti
DD NE

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Keilutungljurt er á válista í hættuflokki DD (upplýsingar ófullnægjandi).

Válisti 1996: Keilutungljurt er ekki á válista.

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tungljurtir (Psilotopsida)
Ætt (Family)
Naðurtunguætt (Ophioglossaceae)
Tegund (Species)
Keilutungljurt (Botrychium minganense)