Burstajafni (Lycopodium clavatum)

Útbreiðsla

Mjög sjaldgæfur á Íslandi, aðeins fundinn á einum stað á Austfjörðum.

Búsvæði

Lyngmóar.

Lýsing

Meðalhár jafni (5–25 sm) með mjúkum blöðum og gróöxum á grönnum, uppréttum greinum.

Blað

Stöngull burstajafnans er jarðlægur, langskriðull með mörgum uppsveigðum, þétt­blöðóttum greinum. Blöðin eru mjúk, fagurgræn, afar mjó, fíntennt á röndunum, striklensulaga og dragast út í langan (2-3 mm), glæran hárodd.

Blóm

Gróbærir stönglar mynda í toppinn langan (5-10 sm) og grannan, afar gisblöðóttan stilk sem ber oftast tvö gróöx saman á toppnum, stöku sinnum fleiri eða aðeins eitt. Gróblöðin eru stutt og breiðfætt, en með löngum glærum hároddi eins og hin blöðin.

Greining

Líkist fljótt á litið lyngjafna en einkennandi fyrir burstajafna eru hinir grönnu leggir sem gróöxin standa á, auk hároddi (burst) á enda blaðanna og á tveim gróöxum saman á enda grannra, uppréttra greina.

Válistaflokkun

CR (tegund í bráðri hættu)

ÍslandHeimsválisti
CR NE

Forsendur flokkunar

Burstajafni hefur einungis fundist á einum fundarstað, hefur þar takmarkaða útbreiðslu auk þess sem hann virðist eiga í vök að verjast þar.

Viðmið IUCN: B1; B2a+b(iii), D

B1. Útbreiðsla áætluð minni en 100 km2
B2. Dvalar- eða vaxtarsvæði áætlað minna en 10 km2 og mat bendir til að:
a. Útbreiðsla stofns er mjög slitrótt eða takmörkuð við aðeins einn stað.
b. Stofn hefur sífellt minnkað samkvæmt athugun, ályktun eða áætlun;
(iii) stærðar, umfangs og/eða gæða búsvæðis.

D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Burstajafni er á válista í hættuflokki EN (í hættu).

Válisti 1996: Burstajafni er á válista í hættuflokki CR (í bráðri hættu).

Verndun

Burstajafni er friðaður samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Jafnar (Lycopodiopsida)
Ætt (Family)
Jafnaætt (Lycopodiaceae)
Tegund (Species)
Burstajafni (Lycopodium clavatum)