Engjakambjurt (Melampyrum pratense)

Útbreiðsla

Engjakambjurt hefur aðeins fundist í Vaglaskógi, en hún er þar mjög útbreidd ofan til í skóginum og vex á stóru svæði í skógarbotninum. Það vekur athygli, hversu samfellt hún þekur allan skógarbotninn, og því er ljóst að hún hefur vaxið þarna mjög lengi, þótt hún hafi ekki fundist fyrr en 1988, og þá greind sem krossjurt. Erlendis er talið að hún dreifist einkum með maurum um skógarbotninn, en hér er þeim tæplega til að dreifa. Það er því óleyst ráðgáta, hvernig engjakambjurtin hefur náð svo mikilli útbreiðslu um skógarbotninn í Vaglaskógi sem raun ber vitni, án aðstoðar mauranna.

Búsvæði

Engjakambjurtin vex einkum í botni birkiskógarins og breiðir sig víða samfellt yfir allan botninn. Sums staðar vex hún einnig undir greni.

Lýsing

Blað

Laufblöðin eru lensulaga, heilrend ofan til en eru áberandi tennt löngum og mjóum tönnum við blaðgrunninn. 

Blóm

Blómin eru gul og standa í blaðöxlunum. Blómin eru mjórri en á krossjurt, 10-15 mm löng.

Aldin

Fræin eru nokkuð stór, og hafa áfast sérlega næringarríkt áhengsli ætlað maurum sem aðstoða við að dreifa fræjunum.

Greining

Engjakambjurtin líkist krossjurt fljótt á litið í vaxtarlagi og útliti og áður hafði hún verið ranglega greind sem krossjurt. Blómin eru gul og standa í blaðöxlunum eins og á krossjurt, en þau eru töluvert mjórri, 10-15 mm löng. Einkum er það krónupípan sem er lengri en á krossjurt, og litur blómanna er ljósari.

Válistaflokkun

CR (tegund í bráðri hættu)

ÍslandHeimsválisti
CR NE

Forsendur flokkunar

Engjakambjurt hefur afar takmarkaða útbreiðslu en hún finnst einungis á einum stað á norðanverðu landinu, auk þess sem vaxtarsvæði hennar er lítið og hefur minnkað á undanförnum árum.

Viðmið IUCN: B1

B1. Útbreiðsla áætluð minni en 100 km2

B2. Dvalar- eða vaxtarsvæði áætlað minna en 10 km2 og mat bendir til að:
a. Útbreiðsla stofns er mjög slitrótt eða takmörkuð við aðeins einn stað.
b. Stofn hefur sífellt minnkað samkvæmt athugun, ályktun eða áætlun;
(iii) stærðar, umfangs og/eða gæða búsvæðis.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Engjakambjurt var ekki á válista.

Válisti 1996: Engjakambjurt var ekki á válista.

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson, Starri Heiðmarsson júní 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Sníkjujurtaætt (Orobanchaceae)
Tegund (Species)
Engjakambjurt (Melampyrum pratense)