Vatnsnafli (Hydrocotyle vulgaris)

Útbreiðsla

Sjaldgæf jurt sem aðeins finnst við jarðhita. Hún er einkum á tveim jarðhitasvæðum, öðru við Deildartungu í Borgarfirði og hinu í Árnessýslu.

Búsvæði

Við laugar, hveri og meðfram heitum lækjum (Hörður Kristinsson 2010).

Lýsing

Lágvaxin planta (5–15 sm) með stjörnustrengjótt blöð. Blómgast í júlí–ágúst.

Blað

Blöðin eru kringlótt, stjörnustrengjótt, grunnt bogtennt, hárlaus, 1–3 sm í þvermál. Blaðstilkarnir 5–15 sm langir, rísa upp af skriðulum jarðstöngli, festir í blöðkuna miðja, oftast hærðir rétt undir festingunni (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómin örsmá, í litlum, kolllaga sveipum, fimmdeild, yfirsætin. Krónublöðin hvítleit, blómhnapparnir oft bleikleitir. Frævan tvíblaða með tveim stílum (Hörður Kristinsson 2010).

Aldin

Tvíkleyft klofaldin (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Engin önnur íslensk tegund er með stjörnustrengjótt blöð.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Bergfléttuætt (Araliaceae)
Tegund (Species)
Vatnsnafli (Hydrocotyle vulgaris)