Tjarnablaðka (Persicaria amphibia)

Útbreiðsla

Mjög sjaldgæf, aðeins fundin á tveim stöðum: Hofgarðatjörn í Staðarsveit og Vestara Kakkar­vatni í Flóa. Áður fannst hún einnig í Bæjarvatni í Gaulverjabæ. Heimildir eru til um hana frá 1907. Líkur hafa verið taldar á að hún hafi borist til landsins af manna völdum en eins gæti verið að hún hafi borist til landsins og á milli vatna með stórum fuglum.

Búsvæði

Grunn stöðuvötn eða stórar tjarnir (Hörður Kristinsson 2010). Vex á vatnsbotni eða uppi á landi meðfram vötnum.

Lýsing

Stórvaxin vatnajurt (20–60 sm) með rauðmenguðum blöðum og bleikum blómklösum. Blómgast í júlí.

Blað

Jurtin hárlaus. Uppsveigðar greinar vaxa upp af skriðulum jarðstöngli á vatnsbotninum. Getur einnig vaxið uppi á landi meðfram vötnum. Laufblöðin eru stilkuð, blaðkan mjóegglaga eða lensulaga, 4-13 sm löng og 1,5-4 sm á breidd, grágræn eða oft mjög rauðleit, slíðurfætt, með skýrum miðstreng og reglulegum hliðarstrengjum. Grunnur blöðkunnar ýmist ávalur eða lítið eitt bugaður á flotblöðum. Landplöntur hafa fremur mjólensulaga blöð sem mjókka niður að stilknum.

Blóm

Blómin standa mörg þétt saman í axi efst á stönglinum í stuttum klösum sem teygja sig upp úr vatninu. Blómhlífarblöðin eru fimm, rauðbleik að lit, snubbótt. Stoðblöð blómanna eru dekkri, odddregin. Fimm fræflar eru í blómunum, og ein fræva með tveim stílum sem eru samvaxnir neðst.

Aldin

Fræ hennar eru nokkuð stór, 2-3 mm á lengd.  

Greining

Auðþekkt í blóma. Óblómguð líkist hún nykru en þekkist best á greinilega fjaðurstrengjóttum blöðkum, oft með þverum grunni.

Válistaflokkun

EN (tegund í hættu)

ÍslandHeimsválisti
EN LC

Forsendur flokkunar

Tjarnarblaðka er fundin á fjórum stöðum á vestan- og sunnanverðu landinu en virðist horfin af einum fundarstaðanna.

Viðmið IUCN: B1; B2ab(v)

B1. Útbreiðsla áætluð minni en 100 km2.
B2. Dvalar- eða vaxtarsvæði áætlað minna en 10 km2 og mat bendir til að:
a. Útbreiðsla stofns er mjög slitrótt eða takmörkuð við aðeins einn stað.    
b. Stofn hefur sífellt minnkað samkvæmt athugun, ályktun eða áætlun einhvers eftirfarandi þátta;
(iv) fjölda fundarstaða eða undirstofna.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Tjarnablaðka er á válista í hættuflokki EN (í hættu).

Válisti 1996: Tjarnablaðka er á válista í hættuflokki EN (í hættu).

Verndun

Tjarnablaðka er friðuð samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Súruætt (Polygonaceae)
Tegund (Species)
Tjarnablaðka (Persicaria amphibia)