Mýraertur (Lathyrus palustris)

Útbreiðsla

Fremur sjaldgæfar, finnast þó í öllum landshlutum nema ófundnar á vestanverðu Norðurlandi, miðhálendinu, og á suðaustanverðu landinu frá Mýrdalssandi að Stöðvarfirði. Erfitt er að átta sig á hvað það er helst sem takmarkar útbreiðslu mýraertna. Svo virðist þó að þær eigi erfitt uppdráttar þar sem beit er mikil.

Almennt

Á mörgum fundarstaðanna er jurtin smávaxin og blómstrar ekki. Á síðari árum hefur hún þó oft fundist stórvaxin og ríkulega blómstrandi þar sem land hefur verið beitarfriðað í seinni tíð, t.d. í árhólmum Eyjafjarðarár.

Búsvæði

Mýraertur vaxa í graslendi, deiglendi eða kjarri.

Lýsing

Planta með vafþráðum framan á blöðunum, eitt til þrjú pör striklaga smáblaða. Blómgast sjaldan hér en hefur annars fjólublá blóm.

Blað

Blöðin eru fjöðruð, með 1-3 pör af striklaga eða langlensulaga smáblöðum. Smáblöðin eru broddydd, lítið eitt hærð á neðra borði, 2-4,5 sm löng en 2-6 mm á breidd. Endasmáblöðin eru ummynduð í vafþræði sem jurtin notar til að festa sig við allan þann gróður sem vex í nágrenni hennar. Stöngullinn er gáraður, lítið eitt hærður.

Blóm

Blóm mýraertna standa fá saman í langleggjuðum, stuttum klösum. Krónan er 1-1,5 sm á lengd, fáninn dökkfjólublár, kjölurinn ljósari. Bikarinn er 5-tenntur, 7-8 mm, klofinn nær niður til miðs, lítið eitt hærður. Fræflar eru 10, þar af 9 samgrónir í pípu neðan til en einn laus. Ein fræva. Blómgast sjaldan hér á landi.

Aldin

Aldinið er belgur, myndaður af einu fræblaði (Lid og Lid 2005).

Greining

Þær minna nokkuð á umfeðming en blöðin hafa aðeins tvö til þrjú pör af striklaga smáblöðum og blómklasarnir eru blómfáir. Blómin heldur rauðleitari en á umfeðmingi.

Útbreiðslukort

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Ertublómaætt (Fabaceae)
Tegund (Species)
Mýraertur (Lathyrus palustris)